Metal Lyrica - The Largest Metal Lyrics Archive
 www.metallyrica.com
# A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z
Search lyrics by band name or use our Advanced Search engine: 
Advanced Search 


FORGARðUR HELVíTIS LYRICS

Brenniš kirkjur ( Burn Churches )

"Brennið kirkjur ( Burn Churches )" (1995 Demo)

1. Guð er stærsta lygi í heimi (God is the biggest lie in the World)
2. Bónusfólk (Bonus people)
3. Eðlileg hegðun er hundleiðinleg (Normal behaviour is boring)
4. Hóra (Whore)
5. Heilalínuritið er á núlli (Brain activity Zero)
6. Samansaumuð augu (Eyes sewn closed)
7. Dautt fólk er ekki kúl (Dead people ain't cool)
8. Örlag (Sanity)
9. Brennið kirkjur (Burn churches)
10. Hey tussa (Yo cunt)
11. Takk (Thanks)
12. Vonbrigði (Broken hopes)
13. Upprisa (Resurrection)
14. Viðurkenning (Recognition)
15. Þú ert ekki til (You do not exist)
16. Kjöt með gati (Meat with a hole)







1. Guð er stærsta lygi í heimi (God is the biggest lie in the World)

Rætur síðasta hálmstrásins
liggja í annara höndum

Líf mitt er synd
eða játning sakleysingja

Kærleikur minn
skyldurækni

Manngildið mælist
í þjónustulund

Forvitni mín
tilgangslaus

Æðar mínar útstungnar
eftir orðið

Ég verð til
gegnum móðurtölvuna
guð




2. Bónusfólk (Bonus people)

Þau eru svo frjáls
Þau trúa því að vonir þeirra muni rætast
Umsetin eru þau hamingjusöm
Þau brosa
eins og óvinir þeirra
Þau eru neytendur
og neysluvara




3. Eðlileg hegðun er hundleiðinleg (Normal behaviour is boring)

Þegar þú telur þér fært
að framkvæma það sem samfélagið lítur á
sem brenglað, siðlaust eða ógeðslegt
Þá ertu betur sett(ur) andlega
en þeir sem dæma




4. Hóra (Whore)

Að skapa tónlist til að selja
er eins og að gera börnin sín að hórum
Þú vanvirðir það sem þau standa fyrir
og það sem þau hafa að segja
Það er örlítill partur af foreldrunum
í hverju barni




5. Heilalínuritið er á núlli (Brain activity Zero)

Reyndu að skynja
hvað er að gerast í kringum þig
Fastur yfir fjölmiðlunum
mötunin hún gleypir þig
Svona er nú lífið væni
reyndu ekki að breyta því
Þú átt að fylgja ímyndunum
vera eins og allir hinir




6. Samansaumuð augu (Eyes sewn closed)

Þú horfir en sérð ekki
Þú hraðar þér en kemst ekkert lengra
Þú tjáir þig en segir ekkert
Geturðu séð hvað grasið er grænt?
Veistu afhverju barnið brosir?
Þú framkvæmir án þess að gera nokkuð
Þú notar heilann en hugsar ekkert
Þú grætur þurrum tárum
og hlærð með óhljóðum
Ertu kannski barn þíns tíma?




7. Dautt fólk er ekki kúl (Dead people ain't cool)

Það er fólk
sem veit ekki að það er lifandi
Það horfir á líf sitt líða hjá
blindum augum
Það brosir
og sér það í speglinum
Það er þægilegt að vera dauður
í sínum kassa
Í birtulausum heimi
Þó einhver segði í upphafi
hafa verið ljós




8. Örlag (Sanity)

Við erum ótrúlega heilbrigð
af því að við gerum okkur grein fyrir
hve biluð við erum
Við vitum ekki hvað mikið við getum
en gerum það samt
Annarra óeðli er okkar eðli
Annarra geðveiki er okkar heilbrigði




9. Brennið kirkjur (Burn churches)

Táknin standa
Tákn þess sem þarf að útrýma
vegna meiningarinnar
sem liggur í orðinu "frelsi"
Eldur er tákn hreinsunar
Brennið
Brennið
Brennið kirkjur




10. Hey tussa (Yo cunt)

Það þarf að hlusta á sjálfan sig
til að vita hvað maður er að segja
Til að skilja hvað orðin særa
þarf að vera í sömu sporum

Þangað til þú hefur náð þroska
til að skilja merkingu orða þinna
og lært nóg um virðingu
til að vanda orðaval þitt
skaltu halda kjafti




11. Takk (Thanks)

Níðingsverk þín
bæta mig sem manneskju
Skemmdarverk þín
byggja mig upp
Þroski þinn
gerir mig fullkominn

Takk fyrir að fyrirlíta mig
það eykur sjálfstraust mitt
Takk fyrir að hata mig
þá er ég á réttri leið
Takk fyrir að ljúga að mér
nú skil ég sannleikann
Takk fyrir að drepa mig
dauðinn sýndi mér
hve auðvelt er að eyða þér




12. Vonbrigði (Broken hopes)

Það er von
Hún liggur í orðum hinna misskildu
Hegðan þeirra sem ekki vilja líkjast
Hæfileika hinna fyrirlitnu til að þrauka
Þeim sem hafa efann í sér
og vilja lifa á eigin forsendum




13. Upprisa (Resurrection)

Í heiminum fækkar kirkjum
því ég brenndi þá í huga mínum

"Ég trúi á lífið
Ég trúi á dauðann
Ég trúi á upprisu
líkama á sálar"

Kirkjan í huga þínum
Krikjan í eðli þínu
Kirkjan í lífi þínu
Eru ekki aðrir möguleikar?

Trúðu á eigið líf
Trúðu á eigin dauða
Trúðu á eigin uppreisn
af líkama og sál




14. Viðurkenning (Recognition)

Hrákinn í auga mínu
Hrokinn í tillitinu
Eitrið í orðunum
Þegar þeir sem ég vil ekki líkjast
snúast gegn mér
Veita þér mér viðurkenningu
fyrir lífstíl minn
Það sem einhver hatar
hræðist hann um leið




15. Þú ert ekki til (You do not exist)

Það er verið að éta þig
af stórri vél
Hún gerir þig að lítilli vél
Litlausri
Vilji þinn er vilji hennar
Þú ert ekki til




16. Kjöt með gati (Meat with a hole)

 


Search lyrics by band name or use our Advanced Search engine: 
# A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z
  www.metallyrica.com 


Contact e-mail: webmaster@metallyrica.com
Copyright (c) 2007 - Metallyrica.com - All lyrics are the property and copyright of their respective owners.
All lyrics provided for educational purposes and personal use only. Please read the disclaimer.

About Us - Submit Lyrics - Privacy Policy - Disclaimer - Links