|
FORGARðUR HELVíTIS LYRICS
"Gerningaveður" (2002)
1. Án þess að Depla Auga (Without Blinking an Eye) 2. Baráttusöngur (The Song of Fight) 3. Legsteinn Grafar Minnar (The Tombstone of My Grave) 4. Ferðasýn (Travel Sight) 5. Í Forgarðinum (In Limbo) 6. Fjandafæla (Demon Frighter) 7. Krossfest Börn (Crucified Children) 8. Gerningaveður (Spellstorm) 9. Gelding óskhyggjunnar (Castration of Wishful Thinking) 10. Vítahringur ömurleikans (Vicious Circle) 11. Ljósbrjótur (Light Breaker) 12. Guð er Stærsta Lygi í Heimi (God is the Biggest Lie in the World) 13. Vængbrotnir Englar (Angels with Broken Wings) 14. Tormentor 15. Þar Sem Hamingjan Ræður Ríkjum (Where Happiness Rules) 16. Skuggahiminn (Shadowsky) 17. Eðlislægur Fasismi (Fascist by Nature) 18. Heljarslóð (Path to Hell)
1. Án þess að Depla Auga (Without Blinking an Eye)
Mig langar til að verða hetja
að geta vaðið táradalina
án þess að ljósdepill sjáist í auga
Geta haldið salnum klökkum
án þess að bregða tóni
Mig langar til að geta fagnað
hverjum blóðvelli
án þess að leggja merkingu
í sársauka þeirra sem lifa missinn
Heldur vil ég finna guðina miklast
yfir verkum mínum
þar sem ég geng meðal þeirra nafnlausu
og gef
af tóminu
2. Baráttusöngur (The Song of Fight)
Drekann hættum við aldrei að óttast
fyrr en við höfum gengið gegn eldi hans
og stungið úr honum augun
Augnlaus lærir hann að virða óttann sem við þekkjum alltof vel
Þjófinum mun okkur standa ógn af
þar til við finnum híbýli hans
og rænum hann hverju því sem honum er annt um
Eignalaus lærir hann hve mikils við metum okkar eigur
Við höfum lært til ferðar í þeynum
Við þekkjum þögnina frá þeim sem vaxa af fræi
og nýtum okkur blindu þeirra sem stara í sólina.
Næturhvíslaranum fáum við ekki þaggað niður í
fyrr en við höfum þrætt skuggastígana gegnum svartnættið
og dregið yfir barka hans
Þannig finnum við friðinn sem tilheyrir sálinni
Risinn verður ekki lengur valdsmynd
eftir að við höfum náð að fótum hans
og höggvið á hásinar
Við höfum lært til ferðar í þeynum
Við þekkjum þögnina frá þeim sem vaxa af fræi
og nýtum okkur blindu þeirra sem stara í sólina
3. Legsteinn Grafar Minnar (The Tombstone of My Grave)
Ég er legsteinn þeirrar grafar
sem líf mitt hvílir í
stend yfir hræinu af sjálfum mér
Myrtur af fólki
með annan endaþarm
fyrir neðan nefið
Ég mokaði yfir
með samþykki þess
sem var aldrei spurður
Eru ormarnir í hausnum á mér
að vinna verk sitt of snemma?
4. Ferðasýn (Travel Sight)
Við leggjum í svart fjallið
Ferðahugur okkar
borinn á vængjum óttans
Því hann ætlum við
Heim að sækja
Út úr helli draga
Og yfir rumpinn rista
Of lengi höfum við
Í skugga þessa fjalls
Dregið andann
Þvert yfir mýrina
eltum við draugana
Hvern og einn
skulum við
niður kveða
með þeim galdri
sem býr okkur í brjóstum
Öndum með þokunni.
5. Í Forgarðinum (In Limbo)
Þar ríkir vindur sorgar
Kæfðir kertalogar þrír
Þar lýsir bleikur máni
Stirnir á storð nætur
Þar fann Hel sinn frið
Löngum degi í eilífð lokið
Þar steytti Naglfar á skeri
Brotin borð Rifin segl
Þar reisir enginn valinn
Klofnir skildir Brotin sverð
6. Fjandafæla (Demon Frighter)
Mín sannfæring
að trú
á æðri mátt
Sé draumur
maðka
í svartri mold
Setur
von minni
mörk
7. Krossfest Börn (Crucified Children)
Negld á vandamál þeirra
sem töldu sig hafa þroska til alls
Gegnum barnshendur
standa naglar
hertir í hatri
Gegnum viðkvæm hjörtun
standa hnífar
sem snúast í hvert skipti
Gegnum líf foreldra sinna
sjá þau ekkert
nema afskræmda mynd
af heiminum
Gegnum þá mynd
nær ekki einusinni
lygin um guð
8. Gerningaveður (Spellstorm)
Við erum eldingin
úr hvössu auga himinins
sem kveikir elda
Rödd okkar er
reiði þrumunnar
sem skelfir hjörtun
Andi okkar
er ofsi veðursins
sem molar steininn
Höfuðáttirnar
eiga sér upphaf
okkur í brjósti
Náttúra kúgunar
vekur gerningaveður
til höfuðs hásætum
gegn höfðingjum
9. Gelding óskhyggjunnar (Castration of Wishful Thinking)
Eftir að reiðar konur
brugðu hníf
milli fóta mér
fór ég að efast
um tilgang breytni minnar
Alveg eins og
í tvöþúsundáragömlu sögunni
eru menn ekki spurðir
áður en skellt er á þá
syndum bræðra sinna
En hvern hef ég
til að ásaka
mitt glerhús
þolir ekki grjótkast
frekar en annara
Það er víst allt sama blóðið
sem fyllir vefinn
Í hræsni minni
hef ég skapað mér sakleysi
úr óskhyggju
Skerið
Skerið
þið reiðu konur
It takes a sexist
to kill a sexist
10. Vítahringur ömurleikans (Vicious Circle)
Dansið
Dansið
dans hinna rauðeygðu djöfla
Berjið bumbur
þess gráma
sem litar hvern dag
Hamrið þær
svo svitinn spýtist
þartil engin sól rís lengur
Dragið niður tunglið
til að fullkomna hið algjöra myrkur
Hrækið í blind augu þeirra
sem alsjáandi
brutu reglur einstefnugötunnar
Fyrirlitning ykkar
mun blandast tárum ósýnilega fólksins
Ósýnilega fólksins sem geymir myndir afsakleysinu
sem við áttum öll
Deyið
Deyið
Þið sem varla hafið lifað
11. Ljósbrjótur (Light Breaker)
Á völlum
míns fallna sakleysis
sýna mér
brothætt smáblómin
svört augu sín
Leikur barna
fyllir hlýjar nætur sumars
eiðsvörnu hatri
Þar gengur Ljósbrjótur
gegnum líf mitt
12. Guð er Stærsta Lygi í Heimi (God is the Biggest Lie in the World)
Rætur síðasta hálmstrásins
liggja í annara höndum
Líf mitt er synd
eða játning sakleysingja
Kærleikur minn
skyldurækni
Manngildið mælist
í þjónustulund
Forvitni mín
tilgangslaus
Æðar mínar útstungnar
eftir orðið
Ég verð til
gegnum móðurtölvuna
guð
13. Vængbrotnir Englar (Angels with Broken Wings)
Ekki frekar
en smáfuglarnir
ná vængbrotnir englar
sér á flug
Vængbrotnir smáfuglar
verða fórnarlömb
í sjálfsögðum heimi
Brotnar manneskjur
sem enginn réttir manneskjulím
deyja
eða lifa í pörtum
Er víst að hjörtu
sem slitin eru úr brjóstinu
glati fegurð sinni
14. Tormentor
Á hverjum degi
er mér riðið í rassgat
Ef ég opna augun
eru þau stungin út
Þreifi ég mig áfram
eru fingur mínir brotnir
Líkamsleifar mínar
fá að hanga í snörunni
Mín daglega nauðgun
framkvæmd af hinum getulausu
Kveljarinn
Kvelur mig
15. Þar Sem Hamingjan Ræður Ríkjum (Where Happiness Rules)
Það er hérna
sem hamingjan ræður ríkjum
Hér er höggormurinn halaklipptur
syndin er vort daglegt brauð
Hér kastar ljósið engum skugga
við höfum ekkert að hræðast
Hér leikur önnur tónlist við hlustir
vængstýfðir englar stýra nótum
Hér stígum við dans eftir strengjum
fáum hvergi fallið
Héðan flýja allar pestir
í svörtu blóði er engin næring
Hér við sáum dauðum fræjum
því hér er tímans stundin runnin
Hér er hver annars spegill
ásjónur af engu snertar
Hér er holdið veika farið
leið þess fundin upprunans
16. Skuggahiminn (Shadowsky)
Skuggahiminn
litar land
Mara
dæmdum mætir
ríður
hengdum þjófsnaut
Setur mark
genginni braut
Flug hrafna
kringum bæi
Iður fyrsta vorlambs
skorins
Hafði fregnir hennar
merkt mér
Skuggahimin
litar dag
17. Eðlislægur Fasismi (Fascist by Nature)
Ég hata þá
vegna þess
hvernig þeir níðast á þeim
sem eiga það ekki skilið
Ég fyrirlít þá
vegna þess
að þeir
eru trúir skoðunum sínum
Ég vil drepa þá
vegna þess
sem þeir í blindni sinni eyðileggja
Eins og þeir sá
skulu þeir uppskera
Ég hlýt
að vera
djöfuls fasisti líka
18. Heljarslóð (Path to Hell)
|
|